Færsluflokkur: Bloggar

Ruglaður forseti

06060011fks_24bpHvernig væri að leggja niður þessar orðuveitingar. Forsetinn virðist aldrei hafa komist upp á lag með að nota þær af neinu viti. Í fyrra hengdi hann orðu á einn af  glæponum sem komu landinu okkar á hausinn og nú stefnir hann samskiptum okkar við USA í stórhættu.

Aldrei hefur mér nú verið boðin svona orða þó ég hafi nú afrekað ýmislegt merkilegt á lífsleiðinni. Til dæmis er ég búinn að mæta í vinnuna næstum alla daganna í  þessum mánuði.


mbl.is Svikin um Fálkaorðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvítis fockin fokk

090117_053web

www.kastljos.is

 

 


mbl.is Fjöldi manns á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjöll lausn

Hann Baldi frændi var að missa skipstjórnarréttindin sín í Noregi vegna offitu. Baldi fann snjalla lausn og siglir nú um höfin blá í fanta formi. Sjá hér > > >

 

 


mbl.is Of þungir fyrir háloftin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóladiskur Anastasiyu

cover_jolaplata_2009webHún Anastasiya fósturdóttir mín hefur verið að læra á þverflautu í hálft annað ár. Eins og í fyrra þá tókum við upp nokkur jólalög og brenndum á geisladiska sem hún sendi út til ættingja og vina. Anastaiya byrjaði að syngja með kirkjukórnum hér í Njarðvík í haust og stefnir á söngnám næsta haust. Á þessum diski syngur hún einnig þrjú lög.

Upptökurnar eru kannski ekki alveg professional enda teknar upp á fartölvuna með Skype mikrafon, á skömmum tíma. Uppátækið er mjög hvetjandi fyrir hina ungu tónlistarkonuna, og það er það sem skiptir máli.

Ég er búinn að setja jólalögin hennar Anastasiyu í tónlistarspilarann hér á síðunni svo allir geta notið hæfileika hennar.

Gleðileg jól til allar ættingja og vina, nær og fjær frá okkur hér af Keflavíkurflugvelli.


Barnalegt virðingarleysi

080121_5680webMér finnst það alveg makalaust hvað fólk getur sýnt útför litla virðingu með því að gera lítið úr líkkistunni. Sumir tala um að það væri bara í fínu lagi að láta jarðsetja sig í óvandaðri krossviðarkistu eða jafnvel í pappakassa. Rökin eru þau að þetta verði hvort sem er brennt í ofni eða grafið í jörðu.

Er þá ekki, með sömu rökum, hægt að bera fram Frónkex og vatn í erfidrykkjunni því veitingarnar lenda hvort sem er í klósettinu???


mbl.is Líkkistusvik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þungt yfir þjóðinni

081116_2376web
mbl.is Greitt af Icesave reikningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir frá mótmælunum í gær á kastljos.is

081116_2401web

Myndir frá mótmælunum á www.kastljos.is


mbl.is Þinghúsið þrifið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þau voru til staðar fyrir mig á sínum tíma.

 

SÁÁ

SÁÁ eru samtök sem hafa reynst mér vel í gegnum árin. Samtökin eiga nú við mikin rekstrarvanda að stríða. Á þessum tímun sem við lifum við í dag hefur þörfin fyrir SÁÁ aldrei verið meiri.

Gangtu í lið með okkur og skráðu þig sem félaga í SÁÁ með því að smella á myndina  hér að neðan

 


Eitt ljós fyrir hann pabba

22637440_CandlelightÍ dag fórum við Katya og Anastasiya í Fossvogskirkju og áttum litla samverustund með honum pabba, Sæmund Jóhannsson múrarameistara, sem lést í janúar síðastliðnum. Í dag hefði hann orðið 84 ára. Þessi litla stund sem við áttum með honum þarna í kapellunni í dag var mjög góð. 06061801DKS_06bpEinhvern vegin skynjaði ég nærveru hans og að honum líður vel þar sem hann er.

Pabba er sárt saknað og ég hugsa til hans á hverjum einasta degi. Þessa mynd tók ég af pabba í Kolaportinu vorið 2006. Við röltum stundum um Kolaportið á sunnudögum og drukkum svo kaffi á Cafe Paris. Honum líkaði það karlinum.

 


Þreyttur skáti og glaður læknir

081012_0594webÞað er mikið að gera hjá táningnum okkar henni Anastasiyu. Í haust byrjaði hún í skátunum og um helgina fór hún í fyrstu skátaútilegu. Þar var hún vígð og kom dauðþreytt heim seinnipartinn í dag með þennan líka flotta hálsklút. Mér skilst að hann megi aðeins taka niður þegar hún fer í sturtu. Svo er hún líka í Tónlistaskólanum að læra á þverflautu. Hún valdi sjálf að fara í fermingarfræðslu og að syngja í kirkjukórnum. Á miðvikudögum er hún í ævintýraklúbbi í félagsmiðstöðinni hérna í Keflavík. Á laugardögum stundar hún nám í ræðumennsku og latínu við Háskólann í Reykjavík. Í dag spurði ég hana hvað henni finnist nú skemmtilegast af öllu því sem hún hefur tekið fyrir hendur í haust, hvort hún vildi nú ekki sleppa einhverju. Henni finnst allt þetta æðislegt og vill ekki sleppa neinu. Í dag á hún fleiri vinkonur en hún getur talið á fingrum sér. Fyrir það er ég mjög þakklátur.  

081003_0573web2Katya er líka í skýjunum þessa dagana líka því síðan hennar www.minheilsa.net  fékk smá umfjöllun í Vikunni um nálamotturnar sem hún er að flytja inn og selja þar. Aukakilóin mín ganga líka ágætlega í kreppunni og um helgina var ég að uppfæra síðuna heilmikið. Um síðustu helgi fórum við á árshátíð SÁÁ og þá var þessi mynd tekin.

vikan01cÉg bloggaði tvisvar í vikunni um ástandið og óbeit mína á ýmsum ráðamönnum sem mér finnst hafa staðið sig illa. Ég tók þessar færslur út því þótt þessir menn hafi ollið miklum usla í samfélaginu þá er nú best að grufla ekki um of yfir ástandinu. Svona sjálfs síns vegna. Þrátt fyrir allt þá höfum við Katya það bara bærilegt, skuldum lítið og erum í nokkuð öruggri vinnu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband