Frábært stelpnaband

Í lok febrúar var viku vetrarfrí í skólunum hér í Växjö. Anastasiya notaði tækifærið og fór á fjögurra daga hljómsveitanámskeið. Á fimmtudaginn spiluðu svo allar hljómsveitirnar á tónleikum. Bandið hennar Anastasiyu The Black Smurfs (Svörtu strumparnir) tók Joan Jett lagið „I love rock´n roll“ og voru auðvitað langbestar. Anastasiya spilar á gítar.

 The Black Smurfs er bara skipuð stelpum og er ætlunin að halda samstarfinu áfram. Ekki er ólíklegt að þær fái æfingapláss með leiðsögn einu sinni í viku.  Við tókum tónleikana að sjálfssögðu upp á vídeo og er hægt að skoða það hér að neðan. Anastasiya var snögg að stofna aðdáendaklúbb á Facebook þar er að finna myndir frá hljómleikunum og fleira. Endilega heimsækið aðdáendaklúbbinn og gerast meðlimir með því að smella á Facebook merkið hér að neðan.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband