Jóladiskur Anastasiyu

cover_jolaplata_2009webHún Anastasiya fósturdóttir mín hefur verið að læra á þverflautu í hálft annað ár. Eins og í fyrra þá tókum við upp nokkur jólalög og brenndum á geisladiska sem hún sendi út til ættingja og vina. Anastaiya byrjaði að syngja með kirkjukórnum hér í Njarðvík í haust og stefnir á söngnám næsta haust. Á þessum diski syngur hún einnig þrjú lög.

Upptökurnar eru kannski ekki alveg professional enda teknar upp á fartölvuna með Skype mikrafon, á skömmum tíma. Uppátækið er mjög hvetjandi fyrir hina ungu tónlistarkonuna, og það er það sem skiptir máli.

Ég er búinn að setja jólalögin hennar Anastasiyu í tónlistarspilarann hér á síðunni svo allir geta notið hæfileika hennar.

Gleðileg jól til allar ættingja og vina, nær og fjær frá okkur hér af Keflavíkurflugvelli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Sveinsson

Gleðileg jól Kjartan minn, þakka fyrir hljómlistkonuna, skilaðu jólakveðju til allra.

Ólafur Sveinsson, 24.12.2008 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband