26.5.2007 | 12:20
Börn eru engir kjánar.
Rétt eins og fullorðnir þá hafa krakkar skoðanir á hlutunum. Hinsvegar eru lítið tekið mark á því þau hafa til málanna að leggja. Þessir krakkar í bekk 53 í Hólabrekkuskóla eru mjög meðvituð og pæla mikið í lífinu og tilverunni. Þau eru afar einlæg og setja skoðanir sínar fram á einfaldan og skiljanlegan hátt. Ef til vill er það sem okkur vantar. Umræðan er oft á tíðum þung og klunnaleg, uppfull af einhverjum klisjum, sem enginn venjulegur maður botnar í og fyrr en varir sitjum við uppi með einhverjar vanhugsaðar ákvarðanir.
Krakkar í bekk 53 eru útnefndir Varðliðar umhverfisins og þeim titli fylgir sú ábyrgð að standa vörð um umhverfið. Þau átta sig vel á þessu hlutverki sem þeim hefur verið falið og því ákváðu þau að senda frá sér þessa fréttatilkynningu til allra fjölmiðla. Ekki verður annað sagt en að frumraunin í þessu nýja hlutverki hafi tekist nokkuð vel og hafi e.t.v. vakið einverja til umhugsunar.
Til gamans má geta þess að útnefninguna hlutu þau fyrir verkefni sitt Ruslpóstur sem er glærusýning í powerpoint. Hver veit nema að það framtak þeirra hafi orðið til þess að vekja stjórnendur Sorpu og Fréttablaðsins til umhugsunar og breyta viðhorfum þeirra þannig að samningur þeirra á milli varð að veruleika.
Börn eru engir kjánar. Stjórnmálamenn, ráðamenn og fólk almennt þarf að hlusta á þau og taka tillit til skoðana þeirra. Verðlaunaverkefnið Ruslpóstur er hægt að skoða á heimasíðu bekkjarins.
Undirritaður er umsjónarkennari krakkana og mátti til með að senda inn þessa færslu.
Kostnaður við strætósamgöngur myndi skila sér í umhverfis- og slysavernd" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 15.7.2007 kl. 12:07 | Facebook
Athugasemdir
Þakka þér fyrir að skrifa á síðunni minni.
Ég nota Strætó nokkuð mikið, svo mér finnst þetta afturför hjá þeim,
Kveðja, Hörður.
Hörður Jónasson, 26.5.2007 kl. 17:45
Amen.
Georg P Sveinbjörnsson, 26.5.2007 kl. 18:46
Vá ruslpóstverkefnið ykkar er alveg frábært. Gaman að sjá að börnin eru að fá svona skemmtileg og krefjandi verkefni í skólanum. Vonandi vekja þau einhverja til umhugsunar.
Sigrún Ósk Arnardóttir, 27.5.2007 kl. 17:35
Takk fyrir! Börn eru besta fólk! Oft lærir maður mest af þeim blessuðum. En segðu mér eitt, hvenær fær maður að sjá ljósmyndirnar þínar á síðunni. Þó ekki væri nema sýnishorn væri skemmtilegt, að ég tali nú ekki um úrval af myndum af miðbæjarlífinu.
Auðun Gíslason, 1.6.2007 kl. 21:47
°Loks skoðaði ég verkefni krakkanna! Sannarlega umhugsunarvert! Það er ótrúlegur iðnaður á bak við ruslpóstinn. Verkefnið er frábært! Glæsilegt! Einsog við segjum hér heima hjá mér! Til hamingju! Þið eruð snillingar!
Auðun Gíslason, 1.6.2007 kl. 22:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.