Pappírsbrúðkaup

ODS070412_289bwebNæstkomandi laugardag þann 12. apríl eigum við Katya 1. árs brúðkaupsafmæli. Af því tilefni verður opið hús alla helgina að Túnbrekku 10b í Ólafsvík. Allir ættingjar, vinir, samstarfsfólk og svo frv. eru hjartanlega velkomnir. Boðið verður uppá Úkrainska súpu að hætti Kötju og e.t.v. eitthvað fleira. Anastasyia tekur nokkur lög á þverflautuna sína.

Við höfum nægt pláss fyrir næturgesti ef einhverjir vilja notfæra sér það. Frá Reykjavík til Ólafsvíkur er tæplega tveggja tíma akstur á löglegum hraða.

Með kveðju

Katya og Kjartan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elín Katrín Rúnarsdóttir.

Vonandi komumst við.......Samt ekki víst þar sem við verðum með einu barni of mikið í bílinn okkar. Falleg mynd af fallegum hjónum. Eru dúfurnar úti svona gæfar???? Fékkstu ekki peninginn frá mér????

Elín Katrín Rúnarsdóttir. , 9.4.2008 kl. 10:35

2 Smámynd: Ásta Kristín Norrman

Til hamingju með daginn Katya og Kjartan. Vonast til að þið eigið ánægjulegan dag. kær kveðja frá Liddy og fjölskyldu í Svíaríki

Ásta Kristín Norrman, 12.4.2008 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband